- Kynjuð tölfræði og mælaborð
Söfnun kyngreindra tölfræðigagna í landbúnaði
Farið verði í markvissa söfnun á kyngreindum tölfræðigögnum varðandi stöðu kynjanna í landbúnaði. Skilgreint verði umfang og eðli þeirra gagna sem þörf er á að séu til staðar svo að hægt sé að leggja raunhæft mat á stöðu kynjanna innan greinarinnar. Í kjölfarið verði lagðar til leiðir til söfnunar nauðsynlegra gagna sem nýtast stjórnvöldum við samþættingu kynjasjónarmiða við ákvarðanatöku og stefnumótun í landbúnaði.
Markmið aðgerðarinnar verði að rannsaka stöðu kynjanna í landbúnaði.
Tímaáætlun: 2026–2027.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Ábyrgð: Atvinnuvegaráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5, 8 og 10.
Staða aðgerðar:
Í verkáætlun með samningi við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Á byrjunarstigi