Eftirfylgni og innleiðing landsáætlunarinnar

24. Framkvæmdasjóður landsáætlunar gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum

Lýsing aðgerðar: Varið verður 10 millj. kr. árlega, samtals 50 millj. kr. af fjárlögum, til verkefna á vegum ráðuneyta á tímabilinu 2026-2030. Dómsmálaráðuneytið auglýsi eftir umsóknum frá ráðuneytum og úthluti styrkjum til innleiðingar aðgerða í landsáætlun þessari að undangengnu faglegu mati ráðuneytisins. Reglur sjóðsins og umsóknareyðublöð verði kynnt ráðuneytum í byrjun árs 2026.

Markmið aðgerðar: Að efla og styðja við innleiðingu aðgerða í landsáætlun þessari til viðbótar við það sem gert er á fjárlögum og í styrkjum til aðila og félagasamtaka.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.

Samstarfsaðilar: Ábyrgðaraðilar aðgerða.

Tímaáætlun: 2026-2030.

Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 41 um að tryggja fjármögnun aðgerða gegn kynbundnu ofbeldi. 

Staða aðgerðar:

Á byrjunarstigi