Leiðbeiningar, verkferlar og gátlistar

20. Viðbrögð við kynferðislegu ofbeldi framhaldsskólanema gegn samnemendum

Unninn verði viðauki við EKKO – leiðarvísi mennta- og barnamálaráðuneytisins með skýrum leiðbeiningum fyrir skóla um hvernig bregðast beri við atvikum þar sem nemendur beita samnemendur sína kynferðislegu ofbeldi. Í viðaukanum verði lögð áhersla á verkferla, hlutverk skóla og stuðningsúrræði fyrir gerendur með áherslu á faglegan stuðning og endurmat/ígrundun innan skóla. 

Markmið: Tryggja samræmd og fagleg viðbrögð við atvikum þar sem nemendur beita samnemendur sína kynferðislegu ofbeldi, í samræmi við EKKO – leiðarvísi mennta- og barnamálaráðuneytisins. Viðbrögðin tryggi bæði öryggi þolenda og stuðning fyrir meinta gerendur. 

Mælikvarði: Viðauki og útfærðar leiðbeiningar hafi verið birt og kynnt fulltrúum allra framhaldsskóla eigi síðar en haustið 2027.

Kostnaðaráætlun: Innan fjárheimilda.

Ábyrgðaraðili: Mennta- og barnamálaráðuneyti. 

Tímarammi: 2026–2027.

Á byrjunarstigi