1. Kynbundið og kynferðislegt ofbeldi

Landsáætlun um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum, tímasettar aðgerðir 2026–2030

Unnin verði landsáætlun sem taki mið af ákvæðum samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi (Istanbúlsamningsins). Landsáætlunin verði á breiðum grunni með tímasettum aðgerðum á framkvæmdatíma aðgerðaáætlunar þessarar. Stýrihópur hafi það hlutverk að fylgja eftir framkvæmd og innleiðingu landsáætlunarinnar og einnig verði mælaborð með upplýsingum um stöðu aðgerða í landsáætluninni. Þá verði landsáætlunin m.a. kynnt á vef Stjórnarráðs Íslands.
   Markmið aðgerðarinnar verði að fylgja eftir og tryggja innleiðingu á ákvæðum samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi.

Tímaáætlun: 2026–2029.
Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.1, 5.2, 5.3, 5.6, 10.2, 10.3, 10.4, 16.1, 16.2, 16.3, 16.6 og 16.10.

Staða aðgerðar: 

Landaáætlun gegn kynbyndnu ofbeldi gagnvart konum 2026-2030, var kynnt 30. apríl 2026. Unnið er að framkvæmd aðgerða og mælaborð um stöðu aðgerða hefur verið birt á vef Stjórnarráðsins. 

Lokið