1. Kyn, áhrif og þátttaka

Jafnréttisnefnd karla

Skipuð verði karlanefnd sem hafi það hlutverk að vinna skýrslu með yfirsýn yfir samfélagslega stöðu karla og drengja og þær áskoranir sem karlar og drengir standa frammi fyrir í tengslum við jafnréttismál. Nefndin skal skoða hvernig stefnumótun á sviði jafnréttismála geti betur tekið mið af stöðu karla og drengja og leggja fram tillögur um aukinn þátt karla í umræðum um jafnrétti kynjanna og hvernig megi virkja þá frekar til þátttöku í jafnréttisstarfi. Nefndin starfi í eitt ár.
    Markmið aðgerðarinnar verði að fá yfirsýn yfir áskoranir í jafnréttismálum sem karlar og drengir standa frammi fyrir.

Tímaáætlun: 2026–2027.
Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið í samstarfi við Jafnréttisstofu.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Markmið 5.

Staða aðgerðar:

Skipaður hefur verið strákahópur og stefnt er að því að hópurinn skili af sér skýrslu í byrjun árs 2027.

Hafið