13. Stuðningur og fræðsla til foreldra og forsjáraðila um stafrænt ofbeldi og klám
Þróaðar verði samræmdar leiðbeiningar og fræðsluefni fyrir foreldra og forsjáraðila barna og ungmenna um stafrænt ofbeldi gegn börnum ungmennum. Í leiðbeiningunum verði m.a. fjallað um áhrif kláms, stafrænt kynferðisofbeldi og notkun gervigreindar. Áhersla verði lögð á að styðja foreldra í samtali við börn um stafrænt efni, samþykki, mörk, kynheilbrigði og öryggi í stafrænu umhverfi. Við þróun og miðlun verði byggt á fyrirliggjandi fræðsluefni og verkfærum, þar á meðal verkfærakistu foreldra hjá Netvís ásamt efni frá öðrum stofnunum og viðeigandi félagasamtökum, og efnið uppfært og útvíkkað í samræmi við áherslu aðgerðarinnar.
Markmið: Tryggja að foreldrar og forsjáraðilar barna og ungmenna hafi aðgang að áreiðanlegu og samræmdu fræðsluefni til að styðja börn sín gegn stafrænu ofbeldi og skaðlegri stafrænni útsetningu.
Mælikvarði: Samræmdar leiðbeiningar og fræðsluefni liggi fyrir eigi síðar en árið 2028.
Kostnaðaráætlun: 4 millj. kr. á ársgrundvelli.
Ábyrgðaraðili: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Tímarammi: 2027–2028.