Eftirfylgni og innleiðing landsáætlunarinnar
25. Mælaborð um framfylgd aðgerða í landsáætluninni
Lýsing aðgerðar: Komið verði upp mælaborði á vef Stjórnarráðs Íslands, með yfirliti yfir aðgerðir landsáætlunarinnar og stöðu þeirra. Mælaborðið verði uppfært með reglubundnum hætti.
Markmið aðgerðar: Að tryggja yfirsýn yfir stöðu aðgerða í landsáætluninni og auðvelda eftirfylgni.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.
Samstarfsaðilar: Ábyrgðaraðilar aðgerða.
Tímaáætlun: 2026-2030.
Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 50 um innlendan samræmingaraðila sem hafi það hlutverk að tryggja framkvæmd, eftirfylgni og samhæfingu aðgerða gegn kynbundnu ofbeldi.
Staða aðgerðar:
Mælaborð með yfirliti yfir stöðu aðgerða í landsáætluninni hefur verið birt á vef Stjórnarráðsins.
Mælaborðið verður uppfært tvisvar á ári.
Lokið