1. Kynbundið og kynferðislegt ofbeldi

Þjónustuúrræði fyrir gerendur heimilis- og kynferðisofbeldis

Kortlögð verði þau úrræði sem standa gerendum heimilis- og kynferðisofbeldis til boða í samanburðarlöndum með það að markmiði að fjölga og bjóða upp á fjölbreyttari úrræði fyrir gerendur kynbundins ofbeldis.
    Markmið aðgerðarinnar verði að skoða hvernig fjölga megi úrræðum fyrir gerendur kynbundins ofbeldis.

Tímaáætlun: 2027–2028.
Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
Ábyrgð: Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.2 og 16.1.

Á byrjunarstigi