Samhæfð stefna og gagnaöflun

17. Gagnaöflun um allar tegundir kynbundins ofbeldis

Lýsing aðgerðar: Löggæsla, ákæruvald, dómstólar, heilbrigðisþjónusta, félagsmálayfirvöld og barnavernd safni, skrái og birti reglulega aðgreind tölfræðileg gögn sem eiga við um allar birtingarmyndir ofbeldis sem falla undir gildissvið Istanbúlsamningsins.

Markmið aðgerðar: Að samræmdar og nákvæmar upplýsingar, m.a. um brotaþola, gerendur og tegund brota, verði aðgengilegar um land allt.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti í samstarfi við félags- og húsnæðismálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti og mennta- og barnamálaráðuneyti.

Samstarfsaðilar: Hagstofa Íslands, sveitarfélög, sýslumannaráð, Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, félagasamtök sem veita þjónustu vegna ofbeldis, ríkislögreglustjóri, dómstólar og embætti landlæknis.

Tímaáætlun: 2026-2030.

Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 60 um söfnun og birtingu tölfræði um kynbundið ofbeldi, nr. 283 um söfnun tölfræði um fjölda tilvika þar sem nálgunarbanni og brottvísun af heimili er beitt, fjölda brota á ráðstöfununum og þá hvers kyns úrræði tekur við í kjölfar slíkra brota og nr. 191 um söfnun gagna um ákvörðun forsjár og umgengni í málum þar sem saga er um ofbeldi.

Staða aðgerðar:

Á byrjunarstigi