Leiðbeiningar, verkferlar og gátlistar
21. Viðbrögð við óviðeigandi kynferðislegri hegðun barna og ungmenna í skóla- og frístundastarfi
Unnar verði leiðbeiningar fyrir starfsfólk í skóla- og frístundastarfi um viðbrögð við óviðeigandi eða skaðlegri kynferðislegri hegðun barna og ungmenna. Forvarnaáætlun gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi meðal barna og ungmenna. Leiðbeiningarnar byggi á nýjustu þekkingu og alþjóðlegum viðmiðum og séu aðgengilegar fagfólki og stjórnendum í skóla- og frístundastarfi.
Markmið: Tryggja samræmd og fagleg viðbrögð við óviðeigandi kynferðislegri hegðun barna og ungmenna í skóla- og frístundastarfi.
Mælikvarði: Leiðbeiningar birtar og kynntar eigi síðar en 2027.
Kostnaðaráætlun: Innan fjárheimilda.
Ábyrgðaraðili: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Tímarammi: 2026–2027.
Á byrjunarstigi