Almennar aðgerðir

6. Netnámskeið fyrir starfsfólk með börnum og ungmennum verði textuð

Gagnvirk netnámskeið Barna- og fjölskyldustofu fyrir fólk sem starfar með börnum og ungmennum með grunnfræðslu um eðli og afleiðingar kynferðislegs og kynbundins ofbeldis verði textuð í samstarfi við viðeigandi félagasamtök fyrir þau sem ekki hafa íslensku að móðurmáli eða búa við skerta heyrn. - Markmið: Tryggja aðgengi óháð tungumáli. 

Mælikvarði: Textun námskeiða verði lokið á fyrsta ársfjórðungi 2027.

Kostnaðaráætlun: 2 millj. kr. árið 2026 og 3 millj. kr. árið 2027.

Ábyrgðaraðili: Mennta- og barnamálaráðuneyti.

Dæmi um samstarfsaðila: Barna- og fjölskyldustofa, Miðstöð um auðlesið mál.

Tímarammi: 2026–2027.

Á byrjunarstigi