Fræðsla

14. Fræðsla til starfsfólks sem starfar með börnum og ungmennum

Tryggt verði að starfsfólk sem starfar með börnum og ungmennum, þar á meðal starfsfólk í skóla-, frístunda-, íþrótta- og æskulýðsstarfi og listkennslu ásamt dagforeldrum og starfsfólki sem starfar með fötluðum börnum og ungmennum, hljóti fræðslu um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni. Lágmarksfræðsla verði veitt í formi netnámskeiðs sem útbúið hefur verið hjá Barna- og fjölskyldustofu fyrir starfsfólk sem vinnur með börnum og ungmennum. Skólastjórnendur og skólaskrifstofur bjóði upp á frekari fræðslu til að tryggja viðeigandi þekkingu og þjálfun starfsfólks á þeirra vegum. Fræðslan verði samræmd og byggi á sameiginlegum gæðaviðmiðum til að tryggja jafnræði og gæði í allri umönnun og uppeldi barna. 

Markmið: Starfsfólk sem starfar með börnum og ungmennum hafi grunnþekkingu á kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni gegn börnum og ungmennum. 

Mælikvarði: 90% starfsfólks hafi lokið netnámskeiði fyrir lok árs 2030.

Kostnaðaráætlun: Innan fjárheimilda.

Ábyrgðaraðili: Mennta- og barnamálaráðuneyti í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Tímarammi: 2026–2030.

Á byrjunarstigi