Leiðbeiningar, verkferlar og gátlistar
17. Áætlanir og verkferlar til að koma í veg fyrir kynbundið og kynferðislegt ofbeldi
Útbúið verði sniðmát að áætlunum með verkferlum til að koma í veg fyrir kynbundið og kynferðislegt ofbeldi og áreitni gegn börnum og ungmennum. Lögð verði áhersla á fyrirbyggjandi aðgerðir á starfsstöðvum þar sem börn og ungmenni dvelja eða sækja þjónustu. Sniðmátin verði kynnt um land allt með rafrænum kynningarfundum.
Markmið: Koma í veg fyrir kynbundið og kynferðislegt ofbeldi og áreitni gegn börnum og ungmennum.
Mælikvarði: Sniðmát séu tilbúin og hafi verið kynnt fyrir lok árs 2027.
Kostnaðaráætlun: Innan fjárheimilda.
Ábyrgðaraðili: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Tímarammi: 2026–2027.
Á byrjunarstigi