- Jafnrétti í menntun og íþrótta- og æskulýðsstarfi
Endurskoðun íþróttalaga með tilliti til jafnréttis
Unnið verði að heildarendurskoðun íþróttalaga, nr. 64/1998. Meðal fyrirhugaðra breytinga verði ný ákvæði um jafnrétti í íþróttastarfi, sbr. 15. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
Markmið aðgerðarinnar verði að auka vægi jafnréttismála í íþróttastarfi.
Tímaáætlun: 2026–2027.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 3 og 5.
Á byrjunarstigi