1. Kynbundið og kynferðislegt ofbeldi

Vitundarvakning um samning Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi (Istanbúlsamninginn)

Unnið verði að vitundarvakningu um samning Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi (Istanbúlsamninginn) frá 2011, sbr. 13. gr. samningsins.
    Markmið aðgerðarinnar verði að auka vitund og skilning almennings um mismunandi birtingarmyndir ofbeldis sem falla undir gildissvið samningsins.

Tímaáætlun: 2026–2027.
Kostnaðaráætlun: 7 millj. kr.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.1, 5.2, 5.3, 5.6, 16.1, 16.2, 16.3, 16.6 og 16.10.


Á byrjunarstigi