Rannsókn brota, saksókn, réttarfarsreglur og verndarráðstafanir

12. Meðferð kynbundinna ofbeldismála innan réttarvörslukerfisins

Lýsing aðgerðar: Unnin verður rannsókn um viðhorf og reynslu fagaðila sem starfa við meðferð kynbundinna ofbeldismála innan réttarvörslukerfisins.

Markmið aðgerðar: Að kanna hvort breytingar síðustu ára á lagaumhverfi og verklagi hafi skilað tilætluðum árangri í meðferð kynbundinna ofbeldismála eða hvort frekari aðgerða sé þörf.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.

Samstarfsaðilar: Lögregluembættin, ríkislögreglustjóri, saksóknaraembættin og fræðasamfélagið.

Tímaáætlun: 2026-2027.

Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 259 um nauðsyn þess að auka getu lögreglu og ákæruvalds í kynbundnum ofbeldismálum og nr. 264 um nauðsyn þess að greina þætti sem hægja á meðferð kynbundinna ofbeldismála.

Staða aðgerðar:

Á byrjunarstigi