Forvarnir

9. Fatlað fólk og kynheilbrigði

Lýsing aðgerðar: Unnið verður fræðsluefni og kennsluleiðbeiningar fyrir fagfólk og aðra sem koma að þjónustu við fatlað fólk um kynheilbrigði, birtingarmyndir ofbeldis gegn fötluðu fólki, félagsleg tengsl, náin sambönd o.fl. svo unnt sé að miðla því áfram til fatlaðs fólks.

Markmið aðgerðar: Að fatlað fólk fái fræðslu og stuðning varðandi eigin kynhegðun og þekki rétt sinn í nánum samskiptum við aðra.  

Ábyrgð: Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.

Samstarfsaðilar: Ráðgjafar- og greiningarstöð, Þroskahjálp og ÖBÍ.

Tímaáætlun: 2026.

Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 34 um nauðsyn þess að grípa til aðgerða í þágu kvenna sem tilheyra jaðarsettum hópum og eru þ.a.l. í meiri hættu á að verða fyrir ofbeldi og nr. 94 um mikilvægi þess að fagfólk sem vinnur með fötluðu fólki geti borið kennsl á ofbeldi og gripið inn í aðstæður.

Staða aðgerðar:

Á byrjunarstigi