Rannsókn brota, saksókn, réttarfarsreglur og verndarráðstafanir

13. Áhættumat og áhættustýring

Lýsing aðgerðar: Komið verði á kerfisbundnu og samræmdu áhættumati og í kjölfarið viðeigandi áhættustýringu vegna allra tegunda ofbeldis sem Istanbúlsamningurinn nær til hjá öllum stofnunum sem koma að slíku ofbeldi.

Markmið aðgerðar: Að stuðla að skaðaminnkun, lágmarka tjón og hættu. Þá er aðgerðinni einnig ætlað að stuðla að sameiginlegum skilningi ólíkra stofnana á ofbeldi og áhættu sem og tryggja fullnægjandi miðlunarheimildir þeirra á milli.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.

Samstarfsaðilar: Ríkislögreglustjóri, lögregluembættin, heilbrigðisstofnanir, sveitarfélög og barna- og fjölskyldustofa.

Tímaáætlun: 2028.

Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 274 um nauðsyn þess að hluteigandi stofnanir séu skyldugar til þess að framkvæma kerfisbundið áhættu- og öryggismat vegna ofbeldis og nr. 189(b) um ofbeldi í garð barna.

Staða aðgerðar:

Á byrjunarstigi