Eftirfylgni og innleiðing landsáætlunarinnar
23. Stýrihópur um framkvæmd og innleiðingu landsáætlunar gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum
Lýsing aðgerðar: Skipaður verður stýrihópur sem hefur það hlutverk að fylgja eftir framkvæmd og innleiðingu landsáætlunarinnar og Istanbúlsamningsins. Stýrihópurinn hefur umboð til að gera rökstudda tillögu til dómsmálaráðherra um uppfærslu áætlunarinnar.
Markmið aðgerðar: Að tryggja innleiðingu, framkvæmd og samhæfingu landsáætlunarinnar.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.
Samstarfsaðilar: Ábyrgðaraðilar aðgerða.
Tímaáætlun: 2026-2030.
Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 50 um innlendan samræmingaraðila sem hafi það hlutverk að tryggja framkvæmd, eftirfylgni og samhæfingu aðgerða gegn kynbundnu ofbeldi og nr. 46 um aukna aðkomu frjálsra félagasamtaka að stefnumótun.
Staða aðgerðar:
Á byrjunarstigi