Vernd og stuðningur

4. Aðgengi að þjónustu eflt um land allt

Lýsing aðgerðar:

Unnið verður að því að efla þjónustu og ráðgjöf í kjölfar kynbundins ofbeldis um land allt.  

Markmið aðgerðar: Að tryggja jafnt aðgengi og sambærilega þjónustu til þolenda kynbundins ofbeldis um land allt.

Ábyrgð: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti.

Samstarfsaðilar: Sveitarfélög, frjáls félagasamtök sem veita þjónustu vegna ofbeldis og Reykjavíkurborg.

Tímaáætlun: 2026-2030.

Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 137 varðandi fjármögnun þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis og nr. 138 um framboð fjölbreyttrar þjónustu um allt land.

Staða aðgerðar:

Á byrjunarstigi