Stafrænt kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni

10. Fræðsla um stafrænt öryggi barna og ungmenna

Útbúið verði fræðslu- og kynningarefni um reglur til að tryggja öryggi barna í stafrænu umhverfi, sbr. aðgerð níu um stafrænt öryggi barna og ungmenna, og hvað í þeim felist. Leitað verði samstarfs við viðeigandi stofnanir, hagaðila, félagasamtök og helstu innlendu þjónustuveitendur við gerð og dreifingu fræðsluefnis. 

Markmið: Tryggja öruggt, barnvænt stafrænt umhverfi og draga úr skaðlegum áhrifum klámefnis, áreitni og annarra áhættuþátta á börn og ungmenni.

Mælikvarði: Fræðsluefni um samræmdar reglur um stafrænt öryggi barna hafi verið þróað samhliða vinnu við aðgerð níu um stafrænt öryggi barna og komið í kynningu og dreifingu fyrir lok árs 2029.

Kostnaðaráætlun: 4 millj. kr. 

Ábyrgðaraðili: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.

Tímarammi: 2028–2029.

Á byrjunarstigi