Stafrænt kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni

9. Aukið stafrænt öryggi barna og ungmenna

Undirbúningur verði hafinn að innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2065 um innri markað fyrir stafræna þjónustu og breytingu á tilskipun 2000/31/EB (tilskipun um rafræn viðskipti). Settar verði samræmdar og skýrar reglur til að tryggja öryggi barna í stafrænu umhverfi sem byggi á ákvæðum reglugerðarinnar. Stuðlað verði að markvissu samstarfi við stafræna þjónustuveitendur um að draga úr aðgengi og útsetningu barna og ungmenna fyrir klámi, stafrænu kynferðisofbeldi og öðru skaðlegu kynferðislegu efni í stafrænu umhverfi. Reglurnar feli m.a. í sér að til staðar verði skýrar og aðgengilegar leiðir til að tilkynna ólögmætt eða skaðlegt efni, sjálfgefnar persónuverndarstillingar fyrir aðganga barna, einfaldar leiðir fyrir börn til að loka á aðra notendur og virkar aldursstýringar á efni sem ekki sé ætlað börnum, þar á meðal kynferðislegt efni.

Markmið: Draga úr skaðlegum áhrifum kláms og stafræns kynferðisofbeldis á börn og ungmenni með því að tryggja að stafrænt umhverfi styðji við forvarnir.

Mælikvarði: Barnvænar stillingar, aldursstýring og tilkynningaleiðir hafi verið innleiddar hjá helstu stafrænu þjónustuveitum sem börn og ungmenni nota fyrir árslok 2029.

Kostnaðaráætlun: Innan fjárheimilda. - Ábyrgðaraðili: Atvinnuvegaráðuneyti. 

 Tímarammi: 2026–2029.

Á byrjunarstigi