Samhæfð stefna og gagnaöflun
18. Umsóknir um alþjóðlega vernd á grundvelli kynbundinna ofsókna
Lýsing aðgerðar: Skráningarkerfi Útlendingastofnunar verður bætt þannig að hægt sé að skrá, safna og birta gögn um fjölda umsókna um alþjóðlega vernd á grundvelli kynbundinna ofsókna.
Markmið aðgerðar: Að hægt verði að kalla fram upplýsingar um fjölda umsókna um alþjóðlega vernd á grundvelli kynbundinna ofsókna og niðurstöður þeirra.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.
Samstarfsaðilar: Útlendingastofnun.
Tímaáætlun: 2028.
Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 60(f) um gagnasöfnun yfir fjölda hælisumsókna á grundvelli kynbundna ofsókna og niðurstöður þeirra.
Staða aðgerðar:
Á byrjunarstigi