Almennar aðgerðir

3. Efling forvarnateyma grunnskóla

Forvarnateymi grunnskóla verði efld og hlutverk þeirra endurskoðað og skýrt í nánu samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. Tryggt verði að teymin fái skýrt umboð og ábyrgðarsvið. Setu í forvarnateymum fylgi skilgreindur tími, teymisvinna byggi á stöðugleika með skýru verklagi, og fulltrúum í teymunum standi til boða reglubundin þjálfun og endurmenntun í samstarfi við skólaskrifstofur og Samband íslenskra sveitarfélaga.

Markmið: Efla og skýra hlutverk forvarnateyma til að tryggja samræmd og markviss viðbrögð.

Mælikvarði: Að minnsta kosti 90% grunnskóla hafi á að skipa virku forvarnateymi með skýrt skilgreint hlutverk og ábyrgðarsvið. Endurmenntun fari fram reglulega fyrir hvert teymi á tímabilinu 2026–2030.

Kostnaðaráætlun: Innan fjárheimilda.

Ábyrgðaraðili: Mennta- og barnamálaráðuneyti í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Tímarammi: 2026–2030.

Á byrjunarstigi