Eftirfylgni og mat á árangri

22. Stýrihópur um framkvæmd og innleiðingu forvarnaáætlunar

Dómsmálaráðuneyti beri ábyrgð á forvarnaáætlun þessari og samhæfingu og eftirfylgni með aðgerðum hennar. Skipaður verði þverfaglegur stýrihópur með fulltrúum frá ábyrgðaraðilum aðgerða sem starfi út gildistíma forvarnaáætlunar. Stýrihópurinn hafi það hlutverk að fylgja eftir framkvæmd og innleiðingu forvarnaáætlunar, hafa yfirsýn yfir aðgerðir í öðrum áætlunum stjórnvalda sem snúa að forvörnum, samræma aðgerðir þar sem það á við, halda utan um upplýsingagjöf samkvæmt aðgerð 16 um kynningar og upplýsingagjöf til almennings og fagfólks og kalla eftir upplýsingum vegna uppfærslu mælaborðs samkvæmt aðgerð 23 um mælaborð um framfylgd aðgerða forvarnaáætlunar.

Markmið: Tryggja innleiðingu, framkvæmd, eftirfylgni og samhæfingu forvarnaáætlunar þessarar.

Mælikvarði: Stýrihópur hafi verið skipaður fyrir lok apríl 2026.

Kostnaðaráætlun: Innan fjárheimilda. 

Ábyrgðaraðili: Dómsmálaráðuneyti.

Tímarammi: 2026–2030.

Á byrjunarstigi