1. Kyn, áhrif og þátttaka

Hugræn vinna kynjanna

Unnið verði að því að fanga kynjamynstur hugrænnar vinnu á Íslandi. Unnin verði eigindleg rannsókn á hugrænni vinnu með viðtalsviðbót við megindlega tímarannsókn sem Hagstofa Íslands gerði fyrir forsætisráðuneyti. Í eigindlegu rannsókninni verði rýnt betur í niðurstöður megindlegu rannsóknarinnar sem endurspegla hugræna vinnu og ósýnilega verðmætasköpun hennar.
    Markmið aðgerðarinnar verði að fanga umfang hugrænnar vinnu kynjanna á Íslandi.

Tímaáætlun: 2026–2027.
Kostnaðaráætlun: 3 millj. kr.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið í samstarfi við Háskóla Íslands.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5 og 5.4.



Á byrjunarstigi