1. Jafnrétti í menntun og íþrótta- og æskulýðsstarfi

Uppfærsla á gátlista Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu

Gátlisti fyrir námsefnishöfunda verði yfirfarinn og uppfærður svo að hann henti fyrir öll skólastig og þjóni betur breyttu samfélagi. Úthlutun úr þróunarsjóði námsgagna taki mið af því hvort námsefni hafi verið unnið með hliðsjón af uppfærðum gátlista Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Einnig verði námsefni sem unnið hefur verið með hliðsjón af gátlista sem tengist jafnréttis- og kynjafræðum eftir skólastigum gert aðgengilegt með rafrænum hætti.
    Markmið aðgerðarinnar verði að tryggja að allt nýtt námsefni og námsefni sem tekið er til endurskoðunar taki tillit til fólks af öllum kynjum og fjölbreytileika samfélagsins.

Tímaáætlun: 2026–2028.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 3, 4 og 5.

Á byrjunarstigi