15. Hlutverk samfélagslögreglu
Hlutverk samfélagslögreglu í ofbeldisforvörnum barna og ungmenna er mikilvægt og halda þarf áfram að auka sýnileika hennar, aðgengi og skýrar boðleiðir gagnvart skólum, börnum og foreldrum þeirra. Áhersla verði lögð á snemmtæka íhlutun, tengslamyndun og samræmd, barnvæn viðbrögð sem séu til þess fallin að draga úr líkum á stigmögnun þegar áhyggjur af ofbeldi eða áhættuhegðun koma upp, þar á meðal í stafrænu umhverfi. Aðgerðin byggir á því að samfélagslögregla sé traustur tengiliður og viðbragðsaðili.
Markmið: Stuðla að skýrum boðleiðum og styðja við heildstæða nálgun í ofbeldisforvörnum með þátttöku lögreglu.
Mælikvarði: Skilgreint hlutverk samfélagslögreglu í ofbeldisforvörnum barna og ungmenna liggi fyrir á landsvísu og skýrar boðleiðir milli skóla og samfélagslögreglu hafi verið innleiddar eigi síðar en árið 2028.
Kostnaðaráætlun: Innan fjárheimilda.
Ábyrgðaraðili: Dómsmálaráðuneyti.
Tímarammi: 2027–2028