1. Jafnrétti í menntun og íþrótta- og æskulýðsstarfi

Jöfn kynjahlutföll og fjölbreyttur nemendahópur á háskólastigi

Unnið verði að því að jafna kynjahlutföll nemenda á háskólastigi og að nemendur á háskólastigi endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Ástæður kynjahalla verði greindar og samhliða ráðist í markvisst átak til að miðla upplýsingum til þeirra hópa sem skila sér ekki í háskólanám ásamt öðrum aðgerðum til að ná til hópanna. Einnig verði metin kynjaáhrif annars konar námsmats en stúdentsprófs til grundvallar inngöngu í háskóla.
    Markmið aðgerðarinnar verði að jafna kynjahlutföll nemenda á háskólastigi.

Tímaáætlun: 2026–2029.
Kostnaðaráætlun: 8–10 millj. kr.
Ábyrgð: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið í samstarfi við mennta- og barnamálaráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 4.3, 4.4 og 4.5.

Á byrjunarstigi