4. Miðlun þekkingar, skipulag fræðslu og forvarna í skólum, frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum
Stuðningur verði tryggður við skólaskrifstofur sveitarfélaganna, skólastjórnendur, forvarnateymi og annað starfsfólk við miðlun þekkingar og skipulag fræðslu og forvarna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni til að tryggja innleiðingu skipulagðra forvarna í leik- og grunnskólum og frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum. Fræðsla og forvarnir verði samþættar kennslu og skólastarfi og studdar með námsefni og kennsluleiðbeiningum sem sniðin séu að aldri og þroska barna og ungmenna. Aðgerðin verði unnin í nánu samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Markmið: Forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni meðal barna og ungmenna í leik- og grunnskólum og frístundastarfi séu tryggðar.
Mælikvarði: Að minnsta kosti 90% sveitarfélaga fylgi samþykktri fræðslu- og forvarnaáætlun innan leik- og grunnskóla og félagsmiðstöðva og frístundaheimila fyrir lok árs 2030.
Kostnaðaráætlun: Innan fjárheimilda.
Ábyrgðaraðili: Mennta- og barnamálaráðuneyti í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Tímarammi: 2026–2030.