Stafrænt kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni

11. Aðgerðir gegn kynferðisofbeldi með notkun gervigreindar

Mótaðar verði skýrar aðgerðir, leiðbeiningar og viðbragðsferlar vegna stafræns kynferðisofbeldis gegn börnum sem framið er með notkun gervigreindar, þar á meðal framleiðslu, dreifingar og hótana um dreifingu gervigreindarframleidds kynferðislegs efnis, svo sem svokallaðrar djúpfölsunar mynda og myndbanda. - Markmið: Tryggja virka vernd barna gegn stafrænu kynferðisofbeldi með notkun gervigreindar, styrkja viðbragðsgetu skóla og annarra stofnana. 

Mælikvarði: Viðbragðsferlar liggi fyrir eigi síðar en fyrir lok árs 2027. Sérhæfð fræðsla hafi verið innleidd fyrir starfsfólk skóla, skólastjórnendur og annað fagfólk fyrir árslok 2028.

Kostnaðaráætlun: Innan fjárheimilda. - Ábyrgðaraðili: Mennta- og barnamálaráðuneyti.

Tímarammi: 2026–2028.

Á byrjunarstigi