Sameiningar stofnana og verkefna á sviði viðskipta, samkeppnis- og neytendamála
Í samræmi við áherslur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um sterkt samkeppniseftirlit, öfluga neytendavernd, hagstæð rekstrarskilyrði fyrirtækja, aukna skilvirkni í samskiptum fyrirtækja og hins opinbera og einföldu stjórnsýslu, er unnið að sameiningu stofnana og verkefna á sviði viðskiptalífs í nýja sameinaða stofnun.
Staða: Í undirbúningi
Markmið: Hagkvæmari þjónusta
Ráðuneyti: atvinnuvegaráðuneytið