Efla miðlægar stofnanir

Nú stendur yfir greining á miðlægum rekstrarstofnunum fjármála- og efnahagsráðuneytis með það að markmiði að greina hvernig þessar stofnanir ráðuneytisins geti þróast til framtíðar. Markmiðið er jafnframt að greina hvernig megi  bæta þjónustu þeirra strax til að auka samrekstur hjá ríkinu. Umræddar einingar eru Fjársýslan, FSRE, UMBRA og Stafrænt Ísland.

Staða: Komið vel á veg
Markmið: Hagkvæmari þjónusta
Ráðuneyti: fjármála- og efnahagsráðuneytið