Einföldun regluverks og bætt þjónusta

Innviðaráðuneytið og fagstofnanir þess hafa óskað eftir tillögum um hvernig megi einfalda regluverk og bæta þjónustu á vegum ráðuneytisins og stofnana þess. Markmiðið er að bæta þjónustu hins opinbera með því að greina hvort og hvar lagðar eru óþarfar, flóknar eða óljósar byrðar á einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög eða félagasamtök sem þurfa þjónustu eða leita erinda hjá ráðuneytinu eða stofnunum þess. 

https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2025-11-17-Taktu-thatt-i-ad-einfalda-regluverk-og-baeta-thjonustu-hins-opinbera

 

Staða: Hafið
Markmið: Hagkvæmari þjónusta
Ráðuneyti: innviðaráðuneytið