Koma á fót tæknisamstæðu grunnskráa ríkisins
Gögn eru ein mikilvægasta auðlind hins opinbera og forsenda stafrænnar stjórnsýslu, skilvirkni og öruggrar upplýsingamiðlunar. Staðan er hins vegar sú að grunnskrár eru reknar á ólíkum tækniinnviðum sem leiðir til tvíverknaðar, aukins kostnaðar og flókinnar samþættingar og gagnamiðlunar á milli stofnana. Fjöldi greininga síðust ár hefur komist að sömu niðurstöðu; að þörf sé á samræmdum tæknilegum innviðum án þess að breyta faglegri ábyrgð stofnana á gögnum sínum.
Uppbygging sameiginlegra gagnainnviða snýst ekki um að færa faglega ábyrgð á gögnum frá þeim stofnunum sem fara með hana í dag heldur munu stofnanir áfram bera ábyrgð á innihaldi og gæðum gagna. Markmiðið er að byggja sameiginlega tæknilega umgjörð fyrir rekstur, þróun, öryggi og miðlun gagna.