Persónuleg aðstoð hjá Sýslumanni

Tryggt verður að notendur geti fengið leiðbeiningar og aðstoð á starfsstöðvum Sýslumanns, meðal annars við rafrænar umsóknir og samskipti við sérfræðinga í fjarfundi. Þannig geta þeir sem ekki geta eða vilja nýta stafrænar þjónustuleiðir fengið viðeigandi þjónustu í eigin persónu.

Ábyrgð: Sýslumaður. 

Staða: Hafið
Markmið: Aðgengilegri þjónusta
Ráðuneyti: dómsmálaráðuneytið