Dreift þjónustunet ríkisins
Kannað verður hvernig starfsstöðvar Sýslumanns geti veitt þjónustu fyrir fleiri ríkisstofnanir og stjórnvöld um land allt. Þá verður aðgengi starfsfólks Sýslumanns að kerfum og upplýsingum þeirra stofnana sem embættið veitir þjónustu fyrir verður yfirfarið og aukið eftir því sem heimildir leyfa. Markmiðið er að starfsfólk geti leiðbeint þeim sem þegar leita til Sýslumanns og veitt þeim heildstæðari þjónustu í fyrstu snertingu. Jafnfram verða greindar verða hindranir fyrir samræmdri og stafrænni málsmeðferð og gerðar tillögur að einföldun regluverks.
Samstarf: Sýslumaður.
Staða: Í undirbúningi
Markmið: Aðgengilegri þjónusta
Ráðuneyti: dómsmálaráðuneytið