Uppbygging vinnustaðaklasa á landsbyggðinni
Innviðaráðherra veitir styrki til uppbyggingar vinnustaðaklasa á landsbyggðinni sem veittir eru á grundvelli byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036, nánar tiltekið aðgerð B.7 um óstaðbundin störf. Gert er ráð fyrir að aðgerðinni verði framhaldið í nýrri byggðaáætlun fyrir 2027-2041. Markmiðið er að efla búsetufrelsi með fjölgun atvinnutækifæra og auknum fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni. Aðgerðin felur í sér að styrkja uppbyggingu vinnustaðaklasa og að fjölga óstaðbundnum störfum á landsbyggðinni.
Staða: Hafið
Markmið: Hagkvæmari þjónusta
Ráðuneyti: innviðaráðuneytið