Jafnt aðgengi að þjónustu Sýslumanns óháð búsetu
Þjónustuframboð allra starfsstöðva verður skilgreint í reglugerð um hið nýja embætti með það að markmiði að tryggja jafnt aðgengi að grunnþjónustu óháð búsetu. Jafnframt verður stefnt að því að aðilar máls geti fylgst með framvindu þess á Mínum síðum og átt fjarfund með löglærðum fulltrúa þegar þörf krefur.
Ábyrgð: Sýslumaður.
Staða: Hafið
Markmið: Aðgengilegri þjónusta
Ráðuneyti: dómsmálaráðuneytið