Áhrif gervigreindar á mismunandi hópa

Greind verð áhrif aukinnar notkunar gervigreindar á mismunandi hópa samfélagsins. Skoðaðir verða hópar á borð við eldra fólk, fólk með fötlun, innflytjendur og aðra hópa sem kunna að mæta ólíkum áskorunum vegna aukinnar notkunar gervigreindar. Áhersla verður lögð á að greina hvernig notkun gervigreindar í þjónustu og samskiptum getur haft áhrif á virkni og lífsgæði mismunandi hópa. Niðurstöður verða nýttar til að móta aðgerðir sem stuðla að auknu aðgengi, þátttöku og ávinningi mismunandi hópa í samfélagi sem nýtir gervigreind í auknu mæli. 

Samvinna: Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, o.fl. svo sem Hagstofa Íslands, Öryrkjabandalag Íslands, Þroskahjálp, Landssamband eldri borgara, Rauði krossinn, Samband íslenskra sveitafélaga, Fjölmiðlanefnd. 

https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Menningar-nyskopunar-og-haskolaraduneytid/_Ai%20a%C3%B0ger%C3%B0ar%C3%A1%C3%A6tlun%20NET%20(1).pdf

Staða: Hafið
Markmið: Aðgengilegri þjónusta
Ráðuneyti: menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið