Innleiðing stefnu ríkisins í mannauðsmálum
„Mannauður í lykilhlutverki“ er yfirskrift stefnu ríkisins í mannauðsmálum. Stefnan er sú fyrsta sinnar tegundar hjá ríkinu og í henni eru sett fram fimm markmið og áherslur sem er ætlað styðja við stefnumiðaða og aðlögunarhæfa mannauðsstjórnun og skapa eftirsóknarvert starfsumhverfi þar sem hæfni starfsfólks fær notið sín til fulls. Meðal áherslnanna er að skýr tilgangur sé í störfum og verkum starfsfólks ríkisins og að starfsfólk fái tækifæri til að þróa hæfni sína í starfi. Aðgerðaráætlunin nær til ársins 2029 og vinnur markvisst að markmiðum stefnunnar.
Stjórnarráðið | Stefna ríkisins í mannauðsmálum gefin út í fyrsta sinn
Staða: Hafið
Markmið: Betri þjónusta
Ráðuneyti: fjármála- og efnahagsráðuneytið