Þjónustustofnanir innleiði þjónustukefi Ísland.is

Með þjónustukerfi Ísland.is fá stofnanir góða yfirsýn yfir alla veitta þjónustu sem auðveldar markvissar umbætur. Kerfið sameinar allar þjónustubeiðnir á einum stað, þar á meðal símtöl, tölvupósta, netspjall, gervigreindaraðstoð, eyðublöð, samskipti af samfélagsmiðlum og umsóknir úr Umsóknarkerfi Ísland.is.Kerfið veitir jafnframt aðgang að ítarlegri tölfræði og greiningum, svo sem um meðalbiðtíma, umfang erinda, álag og afköst. Þannig geta stofnanir fylgst með þjónustunni í rauntíma, aukið skilvirkni og bætt þjónustu við notendur.

Ábyrgð: Stafrænt Ísland.

Staða: Hafið
Markmið: Betri þjónusta
Ráðuneyti: fjármála- og efnahagsráðuneytið