Stafrænar heilbrigðisupplýsingar á Ísland.is

Þjónustuvefur Heilsuveru.is færist inn á Mínar síður á Ísland.is. Heilbrigðisupplýsingar einstaklinga verða því á Mínum síðum eins og önnur rafræn opinber þjónusta. Eftir að öll virkni frá Heilsuveru er komin inn verður hafist handa að þróa nýjungar og sameina fleiri gögn á einn stað sem snúa að stafrænni heilbrigðisþjónustu.

Staða: Komið vel á veg
Markmið: Betri þjónusta
Ráðuneyti: heilbrigðisráðuneytið