Stafræn heilsa - stefna um gervigreind
Stefnan tekur til allrar nýtingar gervigreindar í innri starfsemi Stafrænnar heilsu og til þeirrar þjónustu sem einingin veitir heilbrigðisstofnunum, hvort sem gervigreind kemur við sögu í klínísku starfi, stoðþjónustu, stjórnun eða rannsóknum. Gagnvart öðrum stofnunum er stefnan leiðbeinandi og hver stofnun ákveður hvernig hún er innleidd og staðfærð.
Staða: Lokið
Markmið: Betri þjónusta
Ráðuneyti: heilbrigðisráðuneytið