Sameining MAST, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs
Lög um Stofnun atvinnuveganna voru samþykkt á Alþingi þann 2. júlí sl. en með þeim sameinaðist Matvælastofnun, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs, ásamt því að matvælaeftirlit flutist frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaga í nýja stofnun. Með sameiningunni var stefnt að því að setja á fót sterka stjórnsýslu- og eftirlitsstofnun sem standi fyrir öflugu fagstarfi, virkri þátttöku í rannsóknum og þróun í starfi. Sameining af þessu tagi er vandasamt verkefni sem mikilvægt er að standa vel að. Lögin um Stofnun atvinnuveganna taka gildi þann 1. janúar 2027 og leggur atvinnuvegaráðuneytið áherslu á að við gildistöku sé búið að undirbúa jarðveginn þannig að stofnunin geti tekið sterk til starfa.
Staða: Komið vel á veg
Markmið: Hagkvæmari þjónusta
Ráðuneyti: atvinnuvegaráðuneytið