Þjónusta þvert á landamæri
Unnið er að ýmsum verkefnum til að bæta stafræna þjónustu þvert á landamæri. Meðal annars er unnið að:
- Gera almenningi kleift að gefa leyfi á Mínum síðum Ísland.is (til skemmri eða lengri tíma) fyrir aðgangi annars lands að samantekt sjúkragagna (e. patient summary).
- Gera almenningi kleyft að nota íslensk rafræn skilríki við innskráningu í Evrópuríki og erlend skilríki við innskráningu á Íslandi.
Staða: Hafið
Markmið: Betri þjónusta
Ráðuneyti: fjármála- og efnahagsráðuneytið