Halda áfram innleiðingu á þjónustukönnun ríkisins
Allar stofnanir hafa aðgang að þjónustukönnun ríkisins. Tilgangur þjónustukönnunar ríkisstofnana er að meta ánægju með opinbera þjónustu og auðvelda stofnunum að skipuleggja þjónustuna út frá þörfum notenda. Niðurstöður eru birtar á mælaborði á vef Stjórnarráðsins. Áherslan á næstu árum er að fjölga stofnunum sem nýta könnunina og fá þannig inn upplýsingar um ánægju með þjónustu allra ríkisstofnana.
Stjórnarráðið | Könnun á þjónustu ríkisstofnana
Staða: Komið vel á veg
Markmið: Betri þjónusta
Ráðuneyti: fjármála- og efnahagsráðuneytið