Sérfræðihópur um samræmda grunnskráningu í félagsþjónustu

Skipaður verði sérfræðihópur sem er ábyrgur fyrir því að skilgreina og gefa út leiðbeiningar um samræmda grunnskráningu fyrir lögbundna félagsþjónustu. Samræmd gögn gefa betri yfirsýn og markmiðið er að tryggja samfellda þjónustu, stuðla að betri nýtingu fjármuna og gera stefnumótun stjórnvalda markvissari. Stefnt er að því að lokið verði við að gefa út fyrstu útgáfu af leiðbeiningum fyrir alla félagsþjónustu sem falla undir verkefni hópsins eigi síðar en 15. desember 2026. 

Samstarf: Sveitarfélög. 

Staða: Hafið
Markmið: Hagkvæmari þjónusta
Ráðuneyti: félags- og húsnæðismálaráðuneytið