Endurbætur á upplýsingakerfi Kærunefndar útlendingamála

Unnið er að þarfagreiningu vegna endurbóta á upplýsingakerfi nefndarinnar. Markmiðið er að bæta yfirsýn yfir stöðu, fjölda og tegundir mála, auðvelda miðlun tölfræði og stjórnendaupplýsinga og styrkja varðveislu þekkingar. Áhersla er lögð á einfalda og hagkvæma lausn með lágmarks sérsmíði.

Staða: Hafið
Markmið: Hagkvæmari þjónusta
Ráðuneyti: dómsmálaráðuneytið