Öryggi í lausnum Ísland.is
Öryggi lausna Ísland.is er gífurlega mikilvægt til að tryggja traust notenda á þjónustunni. Stöðugt er unnið viðfangsefninu meðal annars með eftirfarandi aðgerðum.
- Tryggja áframhaldandi áherslu á upplýsingaöryggi í öllum nýjum lausnum.
- Dulkóða öll gagnasamskipti í gegnum gagnasamskiptalagið Strauminn.
- Eiga náið samstarf við sérfræðinga í upplýsinga- og netöryggi og framkvæma reglulegar úttektir á tæknilausnum Ísland.is.
Ábyrgð: Stafrænt Ísland.
Staða: Komið vel á veg
Markmið: Betri þjónusta
Ráðuneyti: fjármála- og efnahagsráðuneytið